Microsoft AI Skills Fest – þér er boðið !
Lærðu að nýta betur kraft gervigreindarinnar og skráðu þig á Microsoft AI Skills Fest í boði LLPA NTV – Promennt kynnir úrval af fríum alþjóðlegum vefnámskeiðum um gervigreind á vegum Microsoft og LLPA dagana 8. – 15. apríl. Námskeiðin eru stíluð inn á mismunandi hópa svo sem stjórnendur, sérfræðinga og svo alla áhugasama um notkun gervigreindar í lífi og starfi. Hægt er að velja um námskeið á mismunandi tungumálum en flest þeirra eru á ensku. Hér finnur þú úrvalið: https://thellpa.com/aiskillsfest/ NTV Promennt er partner í LLPA (Leading Learner Partner Association) sem er með samstarfsaðila í 55 löndum.